Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. júlí 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bruni í Hringrás

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú bruna sem varð á athafnasvæði Hringrásar við Klettagarða í Reykjavík í nótt. Tilkynnt var um eld skömmu fyrir klukkan þrjú en mikinn reyk lagði frá dekkjum sem kviknaði í.

Vegna rannsóknarinnar biður lögreglan þá sem urðu varir við grunsamlegar mannaferðir í Klettagörðum og nágrenni í nótt að hafa samband í síma 444-1000. Um er að ræða tímabilið frá miðnætti og til þess að lögregla og slökkvilið komu á vettvang.