Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. júní 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bruni í gisti og kaffihúsinu hjá Marlin á Reyðarfirði.

Um kl. 04:00 s.l nótt var tilkynnt til lögreglu um að eldur væri laus í kaffi og gistiheimilinu Hjá Marlín að Vallargerði 9 á Reyðarfirði. Slökkvilið Fjarðabyggðar væri á leið á staðinn. Þrír gestir voru í húsinu og vöknuðu þeir við brunaviðvörunarkerfi sem fór í gang, og komust af sjálfsdáðum út. Slökkvilið Fjarðabyggðar lauk slökkvistörfum laust eftir kl. 05:00.

Ljóst er að miklar skemmdir eru á húsinu af völdun elds, hita, reyks og vatns. Rannsókn lögreglu stendur yfir.