25. júní 2020
25. júní 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Bruni á Bræðraborgarstíg – fjórir fluttir á slysadeild
Fjórir hafa verið fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í húsi á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu í Reykjavík í dag, en tilkynning um eldinn barst kl. 15.15. Vinna á vettvangi stendur enn yfir og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.