5. ágúst 2026
5. ágúst 2026
Brottvísun og endurkomubann
Öllum áhafnarmeðlimum Bandero hefur nú verið birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann. Fyrir ríkisborgara utan EES felur ákvörðunin í sér endurkomubann á allt Schengen-svæðið, en fyrir EES-borgara takmarkast endurkomubannið við Ísland. Endurkomubann er að lágmarki 2 ár og hefst gildistími þess við brottför. Áhafnarmeðlimum hefur verið heimilað að yfirgefa skipið en er gert að sæta tilkynningarskyldu til lögreglu á meðan beðið er þess að ákvörðunin komi til framkvæmdar. Heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra, mun sjá um framkvæmd brottvísunarinnar.
