27. júní 2024
27. júní 2024
Breytingar á reglum um ferðakostnað innanlands
Breyting verður á umsóknum vegna ferðakostnaðar innanlands frá 1.júlí 2024, vegna breytingar á reglugerð nr. 1140/2019.
Lykilbreytingar eru þessar og gilda um ferðir sem eru farnar 1. júlí 2024 og síðar:
Grunnréttur sjúkratryggðra til greiðsluþátttöku í ferðakostnaði verða
fjórar ferðir.
Í ferðum umfram 20 km á hverju almanaksári. Rétturinn hefur verið 3 ferðir á ári frá síðustu áramótum, en hafði þar áður lengi verið tvær ferðir á hverjum 12 mánuðum. Áfram er skilyrði að um sé að ræða nauðsynlega sjúkdómsmeðferð sem ekki er hægt að fá í heimabyggð.
Ekki þarf lengur að skila læknisvottorði vegna grunnréttarins sem nú verður fjórar ferðir á almanaksári.
Einstaklingur getur snúið sér til umboðs Sjúkratrygginga hjá sýslumönnum um landið og fengið ferðakostnað greiddan á grundvelli ferðagagna á borð við flugmiða eða greiðslukvittunar fyrir eldsneyti. Ef rafrænn reikningur fyrir komu í heilbrigðisþjónustu liggur fyrir hjá Sjúkratryggingum þarf engum frekari gögnum að skila. Liggi slíkur reikningur ekki fyrir þarf að sýna fram á greiðslu fyrir komu eða aðra staðfestingu á komu. Gögnum má skila með rafrænum hætti.
Læknar og ljósmæður þurfa áfram að sækja um ferðakostnað vegna ítrekaðra ferða í tengslum við alvarlega sjúkdóma. Sótt er um slíkan ferðakostnað á eyðublaðinu Skýrsla vegna ferðakostnaðar innanlands, sem aðgengilegt er á vefsíðu sjúkratrygginga undir Eyðublöð.
Fyrirspurnir má senda á ferdakostnadur@sjukra.is
Enn aukið við rétt til ferðakostnaðar innanlands 2024 | Sjúkratryggingar (island.is)