23. júní 2026
23. júní 2026
Atvinnuleyfi færast til Útlendingastofnunar
Útlendingastofnun tekur við afgreiðslu atvinnuleyfisumsókna þegar nýsamþykkt lög hafa tekið gildi

Þann 18. júní samþykkti Alþingi breytingar á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga sem fela í sér tilfærslu ábyrgðar á meðferð umsókna og útgáfu atvinnuleyfa frá Vinnumálastofnun til Útlendingastofnunar. Lögin taka gildi daginn eftir birtingu þeirra í Stjórnartíðindum, sem alla jafna verður innan nokkurra vikna frá samþykkt þeirra á Alþingi.
Umsóknir um atvinnuleyfi sem ekki hafa verið afgreiddar af Vinnumálastofnun fyrir gildistöku laganna verða afgreiddar af Útlendingastofnun eftir að lögin taka gildi. Fram að gildistöku laganna hefur Útlendingastofnun ekki heimild til að afgreiða umsóknir um atvinnuleyfi og ekki forsendur til að svara fyrirspurnum um einstök mál sem tengjast slíkum umsóknum. Umsækjendur, atvinnurekendur og aðrir hagsmunaaðilar eru því beðnir um að bíða með erindi sem varða atvinnuleyfi þar til lögin hafa tekið gildi og nánari upplýsingar hafa verið birtar á vef stofnunarinnar.
Gera má ráð fyrir að yfirfærsla verkefnisins muni hafa áhrif á afgreiðslutíma umsókna og svörun erinda fyrst um sinn á meðan nýju verklagi er komið á. Útlendingastofnun biður umsækjendur og aðra hagsmunaaðila um skilning á þessari stöðu og þakkar fyrir sýnda þolinmæði meðan unnið verður að innleiðingu lagabreytinganna.