7. maí 2026
7. maí 2026
Bráðaviðbragð í Öræfum komið í hendur heimamanna
Frétt

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) hefur nú formlega afhent heimamönnum í Öræfum umsjón bráðaviðbragðs á svæðinu. Verkefnið markar mikilvægan áfanga í þróun þjónustunnar, þar sem heimamenn taka nú við ábyrgð á fyrsta viðbragði við bráðum veikindum og slysum.
Bráðaviðbragð í Öræfum var fyrst sett á laggirnar í tilraunaskyni í ágúst 2023 og stóð þá yfir í einn mánuð. Markmið verkefnisins var að efla fyrstu viðbrögð á svæði þar sem langt er í heilbrigðisþjónustu, ekki síst í ljósi mikillar fjölgunar ferðamanna. Árið 2022 hafði HSU jafnframt gert samning við björgunarsveitina Kára í Öræfum um mönnun vettvangsliðahóps, sem hefur reynst afar vel og mun halda áfram störfum.
Í kjölfar jákvæðrar reynslu var verkefnið endurtekið sumarið 2024, yfir mánuðina júní til ágúst, í góðu samstarfi við aðra viðbragðsaðila á svæðinu. Frá júní 2025 var bráðaviðbragðið rekið samfellt fram til 1. maí 2026.
„Sagan hefur sýnt okkur hve brýnt er að hafa bráðaviðbragð á þessu víðfeðma og dreifbýla svæði. Það er ánægjulegt hve farsælt og gjöfult samstarf heimamanna, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og ráðuneytisins hefur reynst við að koma slíku viðbragði á fót. Nú hefur það verið fest tryggilega í sessi með markvissum undirbúningi og góðu skipulagi og ég veit að verkefninu verður vel sinnt í traustum höndum heimamanna í Öræfum“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Undanfarin misseri hafa íbúar í Öræfum markvisst aflað sér menntunar í sjúkraflutningum og undirbúið sig fyrir að taka við verkefninu. Þeir voru því tilbúnir að taka við keflinu 1. maí síðastliðinn og sinna nú þjónustunni með bakvöktum allan sólarhringinn.
Helsta breytingin felst í því að sjúkrabíll er ekki lengur staðsettur í Öræfum. Í staðinn er nú viðbragðsbifreið, búin nauðsynlegum sjúkrabúnaði til að bregðast við bráðum aðstæðum. Þessi þróun markar skref frá tímabundnu úrræði yfir í sjálfbæra og staðbundna lausn þar sem heimamenn gegna lykilhlutverki í að tryggja öryggi íbúa og gesta á svæðinu.
Um viðbragðið segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU; ,,Við hjá HSU erum afar stolt af þeim áfanga sem hér hefur náðst og þakklát fyrir það traust og samstarf sem hefur gert þetta mögulegt. Árangurinn er afrakstur markvissrar vinnu, öflugs samstarfs og framsýni.
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og erum fullviss um að þjónustan muni styrkjast enn frekar í höndum þeirra sem þekkja svæðið best og stand því næst”
HSU óskar Öræfingum innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga.

Sérútbúinn bíll til að sinna þjónustunni