Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. febrúar 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Borgarafundur á Patreksfirði

Í gærkvöldi var haldinn borgarafundur á Patreksfirði þar sem bæjarbúar gátu komið sjónarmiðum sínum á framfæri varðandi löggæslu á svæðinu. Fulltrúar lögreglunnar á Vestfjörðum kynntu núverandi skipulag og nýbreytni í störfum lögreglu í kjölfar sameiningar fjögurra lögregluliða um áramót. Gagnleg umræða varð á fundinum og komu þar fram ýmis sjónarmið er varða hagsmuni bæjarbúa í tengslum við löggæslu, forvarnir og mál sem tengjast málaflokknum á Patreksfirði. Fundarmenn létu í ljós mikla ánægju með aukna sýnilega löggæslu við grunn- og leikskóla á Patreksfirði en undanfarið hafa lögreglumenn á Vestfjörðum lagt áherslu á umferðareftirlit við skóla.