12. október 2023
12. október 2023
Bólusetningar við inflúensu og Covid-19 fyrir forgangshópa hefjast 19. október
Bólusett verður samtímis við inflúensu og Covid-19 og verður bólusetning í boði á heilsugæslustöðvum HSA.
Hægt er að velja um að fá annaðhvort eða bæði bóluefnin í sömu heimsókn
Í forgangshópum eru allir 60 ára og eldri. Einnig þeir sem eru í sérstökum áhættuhópum, s.s. barnshafandi konur, fólk með langvinna hjarta-, lungna, nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdóma og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.
Tekið verður við bókunum frá 9. október í síma 470-3001, alla virka daga á milli kl. 09-15:00.