24. september 2024
24. september 2024
Bólusetning við inflúensu og Covid-19 fyrir forgangshópa
Bólusetning við inflúensu og Covid-19 fyrir forgangshópa
Forgangshópar:
Allir einstaklingar 60 ára og eldri
Öll börn fædd 1.1.2020-30.6.2024 sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er
Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum
Barnshafandi konur
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan
Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu
Tímapantanir eru í síma 470-3001 frá kl. 9:00 - 15:00.
Samtímis verður boðið upp á bólusetningu gegn Covid-19 fyrir 60 ára og eldri auk þeirra sem af læknisráði er ráðlagt að þiggja slíka bólusetningu.
Einstaklingar utan forgangshópa geta bókað tíma í inflúensubólusetningu frá og með 28. október.