Fara beint í efnið

1. júní 2026

Bókasafnasjóður úthlutar fyrir árið 2026

Bókasafnasjóði bárust alls 23 umsóknir og var heildarupphæð umsóttra verkefna rúmar 54 milljónir króna. Alls er úthlutað 19 milljónum króna til níu verkefna í ár og fór úthlutunin fram 31. maí í Höfuðstöðinni.

Styrkþegar Bókasafnasjóðs 2026

Sjóðnum bárust fjölbreytt og innihaldsrík verkefni og skemmtilegt að sjá fjölgun umsókna á milli ára. Hafna þurfti mörgum góðum umsóknum þar sem takmarkað fé er til úthlutunar. Matsnefndin hefði viljað fleiri umsóknir um verkefni sem beinast að faglegu starfi safnanna, verkefni sem nýtast starfsfólki þess við að efla faglegt starf og jafnvel í samstarfi við önnur söfn.

Bókasafnasjóður heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Styrkt verkefni 2026:

Bókasöfn Fjarðabyggðar - Bókasöfn á menningarhátíðum Fjarðabyggðar 2.000.000

Verkefnið Bókasöfn á menningarhátíðum Fjarðabyggðar miðar að því að efla sýnileika bókasafna sveitarfélagsins og styrkja hlutverk þeirra sem opins og aðgengilegs menningar- og fræðslurýmis fyrir alla íbúa. Í verkefninu verða skipulagðir opnir viðburðir á bókasöfnum Fjarðabyggðar í tengslum við menningarhátíðirnar Innsævi, BRAS – menningarhátíð barna og ungmenna og Daga myrkurs.

Bókasafn Hafnarfjarðar - Síðan 600.000

Bókasafn Hafnarfjarðar og Hreiðrið ungmennahús standa saman að bókaklúbbinum Síðunni. Í þessum bókaklúbbi er þó unnið öfugt við flesta aðra, því að notendur eru hvattir til að koma með og/eða segja frá bók sem þeir tengja út frá ákveðnum þemaspurningum hverju sinni.

Bókasafn Kópavogs – Bókasafn fjölbreytileikans 1.200.000

Bókasafn er meira en bara bókasafn, það er menningar- og samfélagsmiðstöð þar sem öll eru velkomin, óháð uppruna, kyni, kynhneigð, færni eða bakgrunni. Bókasafn fjölbreytileikans er átaks- og þróunarverkefni sem miðar að því að fagna fjölbreytileikanum á öllum sviðum og bregðast við því bakslagi sem margir jaðarsettir hópar hafa mætt í réttindabaráttu sinni.

Bókasafn Kópavogs – Sumarlestur 2.550.000

Verkefnið felst í því að efla áhuga barna á yngsta og miðstigi grunnskóla á lestri yfir sumarmánuðina með sameiginlegu landsátaki bókasafna. Til að styðja við átakið verður sett upp sérstök undirsíða fyrir sumarlestur á vefnum Bokasofn.is. Þar verður hægt að nálgast sameiginlegt efni, verkefni, hugmyndabanka og upplýsingar sem öll bókasöfn landsins geta nýtt sér.

Borgarbókasafn Reykjavíkur - Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi 3.200.000

Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi er framlag Borgarbókasafnsins til Miðlalæsisviku í október 2026 og jafnframt heildstæð viðburðaröð haustið 2026. Markmiðið er að kanna og dýpka skilning á tengslum fólks við tækni, miðla og stafræna framtíð með áherslu á umhyggju, gagnrýna hugsun og lýðræðislega þátttöku.

Borgarbókasafn Reykjavíkur – Bækur, uppspretta aukinna lífsgæða 2.500.000

Verkefnið miðar að því að kynna starfsfólki bókasafna, kennurum og öðrum áhugasömum fagaðilum leiðir til að nýta bækur til að bæta líðan og heilsu. Einnig verður í framhaldinu boðið upp á námskeið fyrir almenning þar sem notast er við aðferðafræði bókameðferðar.

Hljóðbókasafn Íslands - Samstilltar hljóð og rafbækur fyrir grunnskólanema 3.700.000

Verkefnið Samstilltar hljóð- og rafbækur fyrir grunnskólanemendur hefur það markmið að efla lestur grunnskólanemenda með því að auka aðgengi að samstilltum hljóð- og rafbókum í gegnum skólabókasöfn. Samstilltar hljóð- og rafbækur eru stafrænar bækur þar sem texti og hljóð fara saman í lestri, þannig að lesandi getur hlustað á upplestur og fylgst með textanum á sama tíma, þær eru því stundum kallaðar karaókí-bækur.

Múlaþing – Sögusmiðja 1.100.000

Sögusmiðja er skapandi ritlistasmiðja fyrir börn og unglinga þar sem rithöfundar leiða ritlistarsmiðjur fyrir tvo aldurshópa, 9–12 ára og 12–15 ára. Þátttakendur kynnast aðferðum sagnagerðar og vinna að eigin textum í skapandi og hvetjandi umhverfi. Í smiðjunum fá þátttakendur innsýn í hvernig sögur verða til og hvatningu til að skapa eigin frásagnir í styðjandi og skapandi umhverfi.

Skólasafn Brekkubæjarskóla á Akranesi / Félag fagfólks á skólasöfnum – Rannsókn á stöðu skólasafna á Íslandi 2.150.000

Í dag er erfitt að nálgast upplýsingar um íslensk skólasöfn og starfsemi þeirra. Tölulegar upplýsingar eru geymdar í fjölda upplýsingakerfa ríkisstofnanna og einstaka sveitarfélaga. Tilfinnanlegur skortur er á öðrum upplýsingum, svo sem um þá starfsemi sem fram fer á hverju skólasafni.

Í matsnefnd Bókasafnasjóðs fyrir úthlutanir úr sjóðnum árið 2026 sátu eftirfarandi fulltrúar úr Bókasafnaráði: Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar (formaður), Njörður Sigurðsson og Örn Hrafnkelsson.

Akraneskaupstaður

Rannsókn á stöðu skólasafna á Íslandi

2.150.000 kr

Borgarbókasafn Reykjavíkur

Bækur, uppspretta aukinna lífsgæða

2.500.000 kr

Borgarbókasafn Reykjavíkur

Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi

3.200.000 kr

Fjarðabyggð

Bókasöfn á menningarhátíðum Fjarðabyggðar

2.000.000 kr

Hafnarfjarðarkaupstaður

Síðan

600.000 kr

Hljóðbókasafn Íslands

Samstilltar hljóð og rafbækur fyrir grunnskólanema

3.700.000 kr

Kópavogsbær

Bókasafn fjölbreytileikans.

1.200.000 kr

Kópavogsbær

Sumarlestur

2.550.000 kr

Múlaþing

Sögusmiðja

1.100.000 kr

Verkefnislýsing: