Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. nóvember 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bjarney S. Annelsdóttir skipuð aðalvarðstjóri

Ríkislögreglustjóri hefur skipað Bjarneyju S. Annelsdóttur aðalvarðstjóra við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Bjarney er önnur konan sem er skipaður aðalvarðstjóri innan lögreglunnar, en í fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra starfar Friðgerður B. Jónsdóttir og er hún fyrsta konan sem skipuð var aðalvarðstjóri í lögreglu ríkisins. Bjarney var metin hæfust úr hópi 15 umsækjenda. Hún er skipuð til fimm ára frá og með 6. nóvember 2013.

Ríkislögreglustjórinn