24. apríl 2026
24. apríl 2026
Birt hefur verið skýrsla um stöðu sjóða og stofnana sem starfa skv. staðfestri skipulagsskrá fyrir árið 2025
Í skýrslunni er gerð grein fyrir stöðu sjóða og stofnana samkvæmt lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagskrá með síðari breytingum. Farið er yfir síðustu breytingar á löggjöf um sjóði og stofnanir sem undir lögin heyra. Má segja að árið 2025 hafi markað tímamót í eftirliti með þessum aðilum við gildistöku laga nr. 112/2024, um breytingu á lögunum frá 1988, 1. janúar það ár, sem fól í sér styrkta lagaumgjörð um þá sjóði og stofnanir, sem undir þau falla.

Talsverð vinna fór á árinu í uppfærslu sjóðaskrár sýslumanns, sem skilaði betri yfirsýn og áreiðanlegri upplýsingum um stöðu sjóða og stofnana. Voru 612 sjóðir og stofnanir skráð sem virk í lok árs, en 44 sjóðir voru lagðir niður. Í ljós kom að 157 sjóðir og stofnanir eru skráð án kennitölu, sem áfram er áskorun í eftirliti með starfsemi þeirra. Á árinu 2025 voru í fyrsta sinn lagðar á stjórnvaldssektir vegna vanskila á ársreikningum. Þrátt fyrir að 189 sjóðir eða stofnanir hefðu sætt álagningu sektar leiddi þessi nýja framkvæmd til umtalsvert bættra skila frá því sem verið hafði. Skilahlutfall ársreikninga fyrir rekstrarárið 2024 nam 89%, samanborið við 60% árið áður.
Í lok árs 2025 voru 71 sjóðir og stofnanir enn í vanskilum með ársreikning, sem er umtalsverð fækkun frá árinu á undan. Má af þessu ráða að þær breytingar sem innleiddar voru hafi haft raunveruleg áhrif á framkvæmd eftirlits.
Samantekt ársreikninga 547 sjóða sýnir sterka heildarmynd en heildareignir þeirra námu yfir 100 milljöðrum króna. Stærð og umsvif sjóða sem skýrslan tekur til er þó mjög mismunandi en stór hluti þeirra er með takmarkaða starfsemi á meðan tiltölulega fáir sjóðir eða stofnanir standa að baki verulegum hluta eigna og umsvifa.
Í ljósi þess sem rakið hefur verið ætti umgjörð þessa málalflokks að vera orðin gagnsærri, skilvirkari og betur til þess fallin að mæta kröfum samtímans.