Fara beint í efnið

24. september 2024

Birna Ágústsdóttir sett sýslumaður á Vesturlandi

Dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi, frá 1. júní til og með 31. maí 2025.

mynd - Birna Ágústsdóttir

Tilefni setningarinnar er beiðni Ólafs Kristófers Ólafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti.

Í ljósi þess að nú stendur yfir stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna og fyrirséð var að þeirri vinnu yrði ekki lokið fyrir 1. júní 2024, var sú ákvörðun tekin að setja Birnu Ágústsdóttur tímabundið til að gegna embættinu á Vesturlandi til viðbótar við eigið embætti á Norðurlandi vestra. Birna mun því gegna báðum embættunum á framangreindu tímabili.

Nánar má lesa í frétt á vef dómsmálaráðuneytisins: https://www.stjornarradid.is/raduneyti/domsmalaraduneytid/