Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. nóvember 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bílvelta á Suðurnesjum

Nokkuð var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Bifreið sem ekið var eftir Skógarbraut valt eftir að ökumaðurinn missti stjórn á henni. Hafnaði hún á hvolfi utan vegar. Mældist vegalengdin frá því að hún fór út af og þar til að hún staðnæmdist 40 metrar. Ökumaðurinn fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Þá var bifreið ekið aftan á aðra sem var kyrrstæð og mannlaus í vegkanti á Aðalgötu. Í öðrum tilvikum var um minni háttar mál að ræða.