Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. janúar 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bílvelta á Suðurnesjum

Bílvelta varð á Suðurstrandarvegi austan við Grindavík í gærdag. Ökumaður hafði misst bifreiðina út í kant með fyrrgreindum afleiðingum. Fór hún niður brattan hlíðarkant eina 50 metra út í hraunið og stöðvaðist í hraunbolla. Ökumaður kenndi verkja eftir atvikið en farþegi sem var með honum í bifreiðinni slapp ómeiddur. Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og var dráttarbifreið fengin til að fjarlægja bifreiðina.