13. nóvember 2026
13. nóvember 2026
Bilun í þjónustu Microsoft hefur áhrif á kerfi SAk
Bilun í þjónustu Microsoft veldur truflunum á tölvupósti hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Tölvupóstur sem sendur er til stofnunarinnar kann að tefjast eða berast ekki. Ábendingahnappurinn á vef SAk er einnig óvirkur sem stendur.

Áhrif bilunarinnar eru mismunandi eftir notendum og enn liggur ekki fyrir hversu víðtækar truflanirnar eru hjá stofnuninni.