Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. mars 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bifreið valt á hringtorgi

Bifreið valt á hringtorginu við Bolafót og Njarðarbraut í Reykjanesbæ í gærkvöld. Krapi var á veginum og slæmt skyggni þegar óhappið átti sér stað. Rann bifreiðin til og endaði á steini á hringtorginu þar sem hún valt. Hún var óökufær eftir veltuna og var því fjarlægð með dráttarbifreið.

Ökumaður og tveir farþegar sem með honum voru í bifreiðinni sluppu ómeiddir.

Áður hafði orðið árekstur á mótum Njarðarbrautar og Stekks þegar bifreið var ekið í veg fyrir aðra. Annar ökumaðurinn kenndi eymsla eftir óhappið og var ekið með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þá var önnur bifreiðin í óökufæru ástandi eftir áreksturinn.