Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. ágúst 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bifhjólaþjófur handtekinn

Nokkur þjófnaðarmál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í Kópavogi um kvöldmatarleytið en hann var á stolnu bifhjóli. Þvottavél var tekin úr fjölbýlishúsi í miðborginni en vélin fannst nokkru síðar í næsta húsi sem einnig er fjölbýlishús. Þjófarnir eru hins vegar ófundnir. Í vesturborginni var brotist inn í hjólhýsi en ekki er ljóst hvort einhvers er saknað og í austurborginni hurfu tvær talstöðvar frá bensínstöð.