14. ágúst 2008
14. ágúst 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Bifhjólamenn sluppu með skrekkinn
Karl á þrítugsaldri slapp með skrekkinn þegar hann missti stjórn á bifhjóli sínu í Árbænum síðdegis í gær. Maðurinn féll í götuna en hann virðist hafa sloppið með skrámur. Þess má geta að bifhjólakappinn var vel útbúinn í leðurgalla og með hjálm en hjálmurinn brotnaði við byltuna. Hjólið er hinsvegar trúlega mikið skemmt. Annar bifhjólakappi, karl á fertugsaldri, komst líka í hann krappann í Hafnarfirði í gær. Sá ók hjóli sínu á húsvegg en slapp ótrúlega vel og eru meiðsli hans að öllum líkindum minniháttar. Ekki er ljóst með afdrif hjólsins en óhappið má rekja til bilunar í bremsum.