5. mars 2009
5. mars 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Berglind Kristinsdóttir sett aðstoðaryfirlögregluþjónn í efnahagsbrotadeild
Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur að tillögu ríkislögreglustjóra sett Berglindi Kristinsdóttur til þess að gegna embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns í efnahagsbrotadeild tímabundið um hálfs árs skeið. Berglind er sett aðstoðaryfirlögregluþjónn í fjarveru Sveins Ingibergs Magnússonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, en Sveinn fluttist til starfa hjá sérstökum saksóknara vegna bankahrunsins. Berglind er skipaður lögreglufulltrúi hjá embætti ríkislögreglustjóra og hefur starfað í efnahagsbrotadeild um árabil. Hún hefur meðal annars lokið námi frá FBI Academy fyrst íslenskra lögreglukvenna.
Ríkislögreglustjóri, 5. mars 2009.