5. maí 2010
5. maí 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Bensínþjófar handteknir í Kópavogi
Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í Kópavogi í nótt en þar höfðu þeir stolið bensíni af einum bíl og reynt að gera það sama við annan. Mennirnir, sem hafa áður komið við sögu hjá lögreglu, játuðu sök en annar þeirra hefur áður gerst sekur um að stela bensíni.