1. júní 2026
1. júní 2026
Barnamenningarsjóður úthlutar 90 milljónum til 43 verkefna
Barnamenningarsjóður úthlutar styrkjum í áttunda sinn en Barnamenningarsjóður var afmælisgjöf Alþingis til íslenskra barna í tilefni 100 ára afmælis fullveldisins

Það var vor í lofti á við úthlutun barnamenningarssjóðs í Höfuðstöðinni.
Barnamenningarsjóður úthlutaði í gær, á degi barnsins, styrkjum til 43 fjölbreyttra verkefna á sviði barnamenningar. Úthlutunin fór fram í Höfuðstöðinni þar sem Hljómsveit 2 í Tónskóla Sigursveins spilaði fyrir gesti í sumarblíðunni.
Umsóknarfrestur í sjóðinn rann út þann 20. mars síðastliðinn og bárust 142 umsóknir og sótt var um 441.7 milljónir króna eða rúmlega fjórföld sú upphæð sem var til ráðstöfunar. Þriggja manna fagráð fjallaði um umsóknirnar og úthlutar nú styrkjum til 43 verkefna.
Meiri hluti umsókna, eða ríflega 60% snúa að tónlist, sviðslistum og myndlist og sem fyrr tók meiri hluti umsókna mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ríflega helmingur allra verkefna nær til landsbyggðarinnar. 43 verkefni verða styrkt í ár. Þau spanna allt litróf lista og menningar, auka aðgengi og þátttöku allra barna í listsköpun og listflutningi og leitast við að gera sköpun barnanna og sýnileika verkanna jafn hátt undir höfði og sambærilegum verkum fullorðinna.
Styrkt verkefnin víkka og breikka grundvöll barnamenningar, en heyra síður til kjarnastarfsemi. Þátttaka barna og ungmenna í hugmynd, þróun og framkvæmd verkefna vega þungt við verkefnamat.
Hæstu styrkir í ár fara til barnamenningarhátíða víðs vegar um land: Skúnaskrall á Norðulandi-Vestra, Undur og Furða á Austurlandi, Barnamenningarhátíð Suðurlands, Púkinn á Vestfjörðum, Barnó - Best mest vest! á Vesturlandi.
Barnamenningarsjóður heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Myndir frá athöfnini eru að finna á vef ráðuneytisins.
Styrkt verkefni:
Act alone, félagasamtök | Barnadagskrá Act alone | 900.000 |
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík | Barna og ungmennakvikmyndahátíðin UngRIFF 2026 | 2.000.000 |
Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu | HIMA 2026 | 500.000 |
Amtsbókasafnið á Akureyri | Sumarsmiðjur 2026 | 100.000 |
Andlag slf. | Tónlistarsmiðja og þátttaka í fjölskyldutónleikum á Sönghátíð í Hafnarborg | 500.000 |
ASSITEJ á Íslandi - samtök um leikhús fyrir unga áhorfendur. | Ungleikur-Sviðslistir fyrir unglinga með unglingum | 3.000.000 |
Austurbrú ses. | Undur og furða | 6.000.000 |
Edinborgarhúsið ehf | Skapandi laugardagar í Edinborgarhúsinu | 1.000.000 |
Fjallið Þorfinnur ehf. | Listasmiðja ListaVestursins | 1.000.000 |
Freyja Eilíf Draumland Helgudóttir | Hilmuskólinn | 300.000 |
Guðlaug María Lewis | BAUN. Barna og ungmennahátíð í Reykjanesbæ | 1.300.000 |
Guðný Rúnarsdóttir | Leirum blómapotta - ör-námskeið fyrir fjölskyldur | 320.000 |
Hafnarfjarðarkaupstaður | Heimar og himingeimar | 630.000 |
Hamraborg Festival, félagasamtök. | Fjölskyldudagskrá Hamraborg Festival 2026 | 1.400.000 |
Handbendi Brúðuleikhús ehf. | Stúdíó Handbendi 2026-27 | 2.000.000 |
Heiðrún Kristín Guðvarðsdóttir | Vinalestur Heiðrúnar | 300.000 |
Heimili kvikmyndanna - Bíó Paradís | Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík | 2.000.000 |
Íslenska Myndasögusamfélagið (ÍMS) | Landskeppni Barna og Unglinga í Myndasögugerð - Kríukeppnin | 1.400.000 |
Kvikmyndahátíð í Reykjavík | Barnadagskrá Stockfish kvikmynda- og bransahátíðar | 1.400.000 |
Köttur úti í mýri, félag | Jólabókaflóð barnanna í Grundarfirði | 1.000.000 |
Leikfélag Hornafjarðar | Sviðið okkar | 1.000.000 |
Listahátíð í Reykjavík | Loftvægi, tónverk flutt af skólahljómsveitum við opnun Listahátíðar í Reykjavík | 950.000 |
Lúðrasveit Stykkishólms | Lúðrasveit Stykkishólms á faraldsfæti | 500.000 |
Marija Mikic Maric | I feel like telling a story - intercultural children theater experience | 1.700.000 |
Miðnætti leikhús | Blekking - leikverk í skólastofum | 3.000.000 |
Myndlistarmiðstöð | Myndlist fyrir alla | 3.000.000 |
Ólafur Björn Ólafsson | Varir að eilífu | 200.000 |
Óskar Andri Bjartmarsson | Öskubuska: Óperuævintýri fyrir börn | 4.000.000 |
Pera Óperukollektíf, félagasamtök. | Söng- og óperuverkefni á Óperudögum 2026 | 2.000.000 |
Rekstrarfélagið Hörpustrengir ehf. | Upptakturinn 2027 | 1.300.000 |
Reykjanesbær | Hinsegin litir framtíðarinnar | 5.000.000 |
Reykjavíkurborg | BIG Bang tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur | 4.000.000 |
Samtök sunnlenskra sveitarfél | Barnamenningarhátíð á Suðurlandi | 6.000.000 |
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra | Skúnaskrall - Öll saman | 6.000.000 |
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi | BARNÓ - BEST MEST VEST 2026 | 6.000.000 |
Sinfóníuhljómsveit Suðurlands ehf. | Galdrar í tónlist Skólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands 2026 | 1.900.000 |
Svava Gunnarsdóttir | Stíll hönnunarkeppni og Danskeppni Samfés 2027 | 1.900.000 |
Sögur - samstarf um barnamenningu | Sögur - Skapandi skrif og Sögur - Verðlaunahátíð barnanna | 2.500.000 |
Tungumálatöfrar, félagasamtök | Listasmiðjur á Tungumálatöfrum | 1.800.000 |
Ungíkór, Landssamtök barna- og unglingakóra | Norbusang 2026 - Norrænt barna- og ungmennakóramót | 1.800.000 |
Veglyndi slf. | Sólarpönk: Bjartsýnishátíð | 400.000 |
Vestfjarðastofa ses. | Skapandi framtíð púkanna á Vestfjörðum | 6.000.000 |
ÞYKJÓ ehf. | Bætum og kætum Barnaspítala Hringsins | 4.000.000 |
Stjórn Barnamenningarsjóðs 2026:
Guðný Hilmarsdóttir, formaður stjórnar
Fríða Björk Ingvarsdóttir
Felix Bergsson
Eyþór Stefánsson
Thelma Lind Árnadóttir