Fara beint í efnið

3. júlí 2024

Þjónusta barna- og unglingageðteymis Sjúkrahússins á Akureyri færist til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands

Þjónusta sú sem barna- og unglingageðteymi (BUG) hefur veitt á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) mun færast til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) frá og með 1. október næstkomandi.

unglingar

Markmiðið með þessari tilfærslu er að efla þjónustu og samfellu í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni á Norður- og Austurlandi undir hatti HSN.

Á undanförnum árum hefur átt sér stað markviss uppbygging á sálfélagslegri þjónustu HSN. Þar er í dag rekið öflugt teymi fagfólks sem þjónustar bæði börn og fullorðna á Norðurlandi.

Rétt er að árétta að áfram mun SAk sinna bráðaþjónustu fyrir börn og unglinga á svæðinu og munu SAk og HSN koma á verklagi um samvinnu vegna bráðamála sem koma beint til SAk.

Undirbúningur að framkvæmd yfirfærslunnar er þegar hafinn og er með þeim hætti að ekki verði rof í geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni á Norður- og Austurlandi.

Mynd er úr myndasafni og tengist ekki efni fréttarinnar.