Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. ágúst 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys við Reynisfjöru í Mýrdal

Erlendur ferðamaður lést við Reynisfjöru í Mýrdal þegar hann féll til jarðar með svifvæng sem hann flaug þar um kl. 18:43 í kvöld. Lífgunartilraunir á vettvangi báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn á staðnum. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Suðurlandi en ekki er unnt að gefa frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.