Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. nóvember 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys í umferðinni

Maður á þrítugsaldri lést í umferðarslysi á níunda tímanum í gærkvöldi er rafhlaupahjól og hópferðabifreið lentu saman á horni Barónsstíg og Grettisgötu. Maðurinn sem lést var á rafhlaupahjólinu. Farþegum hópferðabifreiðarinnar var boðið upp á áfallahjálp hjá Rauða krossinum. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tildrög slyssins ásamt Rannsóknarnefnd samgönguslysa.