Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. desember 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys í Silfru

Íslenskur karlmaður á fertugsaldri lést við köfun í Silfru fyrr í dag. Maðurinn hafði verið á eigin vegum við annan mann að kafa í Silfru. Maðurinn var á um 40 metra dýpi þegar eitthvað óvænt kom uppá. Félagi mannsins fór þegar niður og kom honum upp á yfirborðið þar sem hafnar voru lífgunartilraunir sem ekki báru árangur og maðurinn úrskurðaður látinn. Hinn maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítala í Fossvogi vegna gruns um köfunarveiki. Hinn látni var vanur köfun. Lögreglan á Selfossi fer með rannsókn málsins en ekki liggur fyrir hvað gerðist. Sérsveitarmenn frá ríkislögreglustjóra, sérfræðingar Langhelgisgæslu og köfunarsveit Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins komu á staðinn til að nálgast köfunarbúnaðinn sem varð eftir á botni Silfru.