Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. febrúar 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys í Reynisfjöru í Mýrdal

Í morgun kl. 10:39 barst tilkynning til Neyðarlínu um að maður hafi fallið í sjóinn við Reynisfjöru í Mýrdal. Lögregla, björgunarsveitir og sjúkraflutningamenn fóru þegar á vettvang og náðist maðurinn um borð í bát björgunarsveitar en lífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi. Hann var Kínverskur ríkisborgari , fæddur 1976, ferðamaður hér á landi ásamt eiginkonu sinni.

Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi hefur leitt í ljós að maðurinn stóð á sjálfstætt standandi stuðlabergssteini, um 50 sm. háum, í nokkurra metra fjarlægð frá stuðlaberginu í Reynisfjalli og var þar við myndatöku. Úthafsalda braut þá á steininum og greip manninn sem sogaðist út með henni og drukknaði. Á meðfylgjandi mynd má sjá stein þann er maðurinn stóð á þegar slysið varð.