19. desember 2010
19. desember 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Banaslys í Reykjavík
Alvarlegt slys varð laust fyrir klukkan 17:00 í gær þegar ekið var á gangandi vegfaranda á Snorrabraut við Bergþórugötu, mann á sextugsaldri. Hann hlaut höfuðáverka auk fleiri meiðsla og var fluttur á slysadeild Landspítala. Hann var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna þangað.
Rannsókn málsins stendur yfir og lýtur m.a. að stöðu umferðarljósa er slysið varð, en talið er að maðurinn hafi farið yfir götuna á móti rauðu ljósi. Þá er bifreið ökumanns til skoðunar. Ekki er talið að um hraðakstur hafi verið að ræða.