Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. mars 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys í Mosfellsbæ

Pólskur karlmaður á sextugsaldri lést þegar gólfplata hrundi í nýbyggingu í Sunnukrika í Mosfellsbæ um miðjan dag í gær. Allnokkrir menn voru þar við vinnu þegar slysið varð og slasaðist annar maður, pólskur karlmaður um fimmtugt, alvarlega þegar þetta gerðist. Hann var fluttur á slysadeild og er líðan hans eftir atvikum.

Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

Lögreglan og Vinnueftirlitið rannsaka tildrög slyssins.