24. október 2015
24. október 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Banaslys í Árnessýslu
Banaslys varð í dag þegar þriggja ára barn varð undir jeppabifreið á bifreiðastæði við sveitabæ í Biskupstungum um kl. 17:00 í dag. Lögregla, sjúkralið og undanfarahópur björgunarsveitarinnar á Flúðum voru kölluð á vettvang auk þyrlu frá Landhelgisgæslu Íslands. Barnið var flutt með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík þar sem það var úrskurðað látið. Ekki er unnt að greina nánar frá tildrögum slyssins að svo stöddu. Rannsókn málsins er í höndum rannsóknardeildar Lögreglunnar á Suðurlandi, Tæknideildar Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins og Rannsóknarnefndar samgönguslysa