Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. september 2003

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys á Reykjanesbraut við Grindavíkurveg

Miðvikudagur 24. september 2003.

Kl. 07:06 var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut rétt austan við Grindavíkurveg. Lögregla, sjúkralið og tækjabifreið frá slökkviliðinu fóru á vettvang. Tvær fólksbifreiðar höfðu lent saman og voru ökumennirnir einir í bifreiðum sínum. Annarri fólksbifreiðinni var ekið vestur Reykjanesbraut en skammt frá Grindavíkurvegi missti ökumaðurinn stjórn á bifreiðinni. Bifreiðin lenti utan í ljósastaur, þaðan yfir umferðareyju sem aðskilur akreinarnar, kastaðist í loft upp og lenti ofan á toppi bifreiðar sem var nýkomin inn á Reykjanesbraut til austur af Grindavíkurvegi. Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeildina í Fossvogi í Reykjavík til aðhlynningar. Beita þurfti klippum á aðra bifreiðina til að ná ökumanninum út. Ökumaður þeirrar bifreiðar var fluttur meðvitunarlaus á sjúkrahús alvarlega slasaður og lést hann þar nokkru síðar.