Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. mars 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys á Lyngdalsheiði

Parið sem lést í umferðarslysi á Lyngdalsheiðarvegi í gær var frá Hollandi, karlmaður fæddur 1992 og kona fædd 1995. Þau óku bíl sínum, lítilli sendiferðabifreið, til vesturs, frá Laugarvatni, og virðist sem hann hafi farið yfir á öfugan vegarhelming og lent framan á vörubifreið sem ekið var úr gagnstæðri átt. Aðstæður á vettvangi til aksturs voru góðar, vegurinn auður og þurr og bjart í veðri.

Beðið er niðurstöðu krufningar auk þess sem unnið er að rannsókn ökutækjanna, athugun á ætluðum ökuhraða þeirra og úrvinnslu gagna sem aflað var á vettvangi slyssins. Ljóst er að þetta tekur allt nokkurn tíma.

Lögreglan naut aðstoðar Hollenskra yfirvalda við að upplýsa aðstandendur hinna látnu um slysið.