Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. febrúar 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Austurland: Óbreytt staða – sérfræðingar ofnaflóðavaktar endurmeta stöðuna aftur kl. 18:00

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögreglustjóranum á Austurlandi og Veðurstofu Íslands:

Sérfræðingar á ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands funduðu um miðjan dag um óvissustig vegna ofanflóðahættu á Austurlandi.

Veðurspá á svæðinu gerir ráð fyrir áframhaldandi úrkomu fram á nótt með rigningu í byggð sem nær líklega uppá fjallatoppa. Eins og staðan er núna er ekki talin þörf á frekari aðgerðum.

Vel er fylgst með aðstæðum á svæðinu og munu sérfræðingar á ofanflóðavakt funda aftur klukkan 18:00 þar sem staðan er endurmetin.

Unnið að gerð varnarmannvirkja á Seyðisfirði. Mynd tekinn í janúar