22. desember 2020
22. desember 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Aurskriður á Seyðisfirði – rýming
Aðstæður í Botnabrún voru skoðaðar sérstaklega í dag og er það mat Veðurstofunnar að óverulegar líkur eru á skriðu sem skapað geti hættu neðan Múlavegar (gullitað á korti sem fylgir). Fólki er því heimilt að snúa aftur heim í þau hús.
Þegar þessi tilkynning er send út, þá er í gildi rýming á því svæði sem er litað rautt og er sú ákvörðun í gildi til 27. desember.