Fara beint í efnið

8. apríl 2022

Aukin þjónusta við einstaklinga - Mínar síður

Mínar síður eru í sífelldri þróun en nú geta einstaklingar haft meiri stjórn á eigin efni með aukinni aðgangstýringu.

Forsíðumynd

Mínar síður á Ísland.is eru í sífelldri þróun enda markmiðið þar að einstaklingar geti á einfaldan hátt nálgast eigin upplýsingar og gögn hjá ríkinu.

Nú geta notendur á Mínum síðum uppfært persónuupplýsingar og haldið þeim réttum til að auðvelda samskipti og upplýsingaflæði við stofnanir. Hægt er að uppfæra eftirfarandi upplýsingar

  • Netfang

  • Símanr

  • Bankaupplýsingar

  • Val um hnipp stillingar

Þá hefur bæst við að einstaklingar geta gefið öðrum aðila umboð til að skoða hluti á Mínum síðum. Umboðsvirknina má finna undir aðgangsstýringu.
Þetta er fyrsti fasinn í mörgum því á næstunni munum við opna innskráningar fyrir fyrirtæki, forsjáraðila og talsmenn fatlaðra.

Endurbættar Mínar síður notast við rafæn skilríki við auðkenningu.

Mínar síður Ísland.is