10. október 2025
10. október 2025
Aukin ánægja með þjónustu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands
Nýjustu niðurstöður úr þjónustukönnuninni sýna að HSN heldur áfram að styrkja þjónustu sína og byggja upp traust á meðal íbúa svæðisins.

Um miðjan maí fór af stað þjónustukönnun með það að markmiði að kanna þjónustuupplifun skjólstæðinga sem leita til okkar eftir heilbrigðisþjónustu og greina hvaða þættir þarfnast úrbóta. Könnunin er hluti af þjónustukönnun ríkisstofnana sem Stjórnarráð Íslands stendur fyrir árlega.
Nýjustu niðurstöður úr þjónustukönnuninni sýna að HSN heldur áfram að styrkja þjónustu sína og byggja upp traust á meðal íbúa svæðisins.
Ánægja með þjónustuna hefur aldrei mælst hærri – 91% svarenda lýsa henni sem mjög góðri og frekar góðri og heildareinkunnin hefur hækkað milli ára.
Viðmót starfsfólks fær einnig einstök viðbrögð, en 78% svarenda meta það sem mjög gott.
Áreiðanleiki upplýsinga og hraði þjónustu hafa jafnframt tekið stökk upp á við milli mánaða.
"Þessar ánægjulegu niðurstöður endurspegla samstillt átak starfsfólks HSN á öllum starfsstöðvum okkar til að veita skilvirka, hlýja og faglega þjónustu. Hrós sem og ábendingar um hvað megi betur fara skipta miklu máli, hjálpa okkur að gera gott enn betra og styrkir okkur á áframhaldandi braut. Við erum þakklát öllum þeim sem hafa gefið sér tíma til að svara könnuninni,“ segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN.
Þjónustukönnunin er enn í gangi, hún er rauntímamæling og þau sem sækja þjónustu á heilsugæslustöðvum munu fá sms að loknum tíma með boð um þátttöku. Skjólstæðingar á sjúkra- og hjúkrunardeildum geta einnig tekið þátt.
Hægt er að skoða niðurstöður könnunarinnar á vef Stjórnarráðsins.