26. júlí 2005
26. júlí 2005
Þessi frétt er meira en árs gömul
Aukið umferðareftirlit skilar árangri.
Lögreglan á Patreksfirði hefur verið við hraðamælingar á Vestfjarðavegi þjóðveg nr. 60 milli Flókalundar og Gilsfjarðarbrúar undanfarna daga og hefur umferðarhraði almennt verið vel innan hraðamarka. Af 125 bílum sem mældir voru einn daginn voru aðeins tveir lítillega yfir leyfðum hámarkshraða. Átti þetta jafnt við á malarvegum og vegum með bundnu slitlagi. Af þessum 125 bílum sem mældir voru drógu 20 bílar fellihýsi eða tjaldvagna og voru allir innan leyfðra hraðamarka slíkra bíla. Öflugu umferðareftirliti verður haldið áfram næstu vikur.