Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. maí 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Aukið umferðareftirlit lögreglunnar

Hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er hafið aukið umferðareftirlit í umdæminu. Það er gert í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra en næstu mánuði verður lögreglan mjög sýnileg víða á höfuðborgarsvæðinu af þessari ástæðu. Eftirlitið beinist ekki síst að hraðakstri og ógætilegum framúrakstri. Jafnframt mun lögreglan kanna ástand ökumanna, þ.e. hvort þeir séu undir áhrifum áfengis. Einnig verður fylgst með bílbeltanotkun og ýmsum öðrum öryggisbúnaði, t.d. er varðar eftirvagna.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vonast eftir góðu samstarfi við ökumenn og bendir á að í þetta umferðareftirlit er ráðist með hag allra vegfarenda að leiðarljósi.