Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. ágúst 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Aukið umferðareftirlit á höfuðborgarsvæðinu

Vegna skólabyrjunar í þessari viku má búast við stóraukinni umferð í bítið á morgnana og síðdegis. Lögregla hvetur ökumenn til að gera ráð fyrir þessu í tímaáætlunum sínum. Lögregla mun á sama tíma auka sýnilegt eftirlit á stofnæðum höfuðborgarsvæðisins sérstaklega, en einnig í íbúðahverfum í nágrenni við grunnskóla. Markmiðið er sem fyrr að minna ökumenn á að fara varlega í umferðinni.