7. ágúst 2025
7. ágúst 2025
Auglýst eftir umsóknum í Íþróttasjóð 2026
Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 miðvikudaginn 1. október 2025.

Búið er að opna fyrir umsóknir í Íþróttasjóð vegna verkefna fyrir árið 2026.
Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:
Aðstaða: Sérstakra áhersla á viðfangefni sem styrkja umgjörð íþróttastarfs meðal barna og ungmenna
Útbreiðslu- og fræðsluverkefna: Sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að eflingu faglegrar umgjarðar íþróttafélaga. Sérstaklega þá til verkefna sem snúa að jaðarsettum hópum í íþróttum
Íþróttarannsókna
Verkefna samkvæmt 13. gr. Íþróttalaga
Umsóknarfrestur er til kl.15.00 miðvikudaginn 1. október 2025.
Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu sjóðsins. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.
Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson í netfang ithrottasjodur@rannis.is eða í GSM síma 699 2522