Fara beint í efnið

16. nóvember 2022

Auglýsing um gjaldtöku vegna fiskeldis í sjó

Tvisvar á ári, 15. ágúst vegna tímabilsins 1. janúar til 30. júní og 15. febrúar vegna tímabilsins 1. júlí til 31. desember leggur Fiskistofa á gjald vegna fiskeldis í sjó.

net hendur

Samkvæmt lögum um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð leggur Fiskistofa á gjald tvisvar á ári, 15. ágúst vegna tímabilsins 1. janúar til 30. júní og 15. febrúar vegna tímabilsins 1. júlí til 31. desember.

Samkvæmt fyrirmælum 2. gr. laganna eru gjöldin:

  • Gjald á hvert kílógramm slátraðs lax á árinu 2023 er kr. 18,33

  • Gjald á hvert kílógramm slátraðs regnbogasilungs á árinu 2023 er kr. 9,16

Fiskistofa, 16. nóvember 2022

Björk Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Fiskistofu