Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. október 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Átta teknir fyrir ölvunarakstur

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Garðabæ og einn í Kópavogi og Mosfellsbæ. Tveir voru teknir á laugardag og sex á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 19-53 ára. Þrír þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.