11. júlí 2011
11. júlí 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Átta teknir fyrir ölvunarakstur
Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru sex karlar á aldrinum 19-40 ára og tvær konur, 24 og 26 ára.