18. janúar 2011
18. janúar 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Átta teknir fyrir ölvunarakstur
Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina en sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Sex voru teknir á laugardag og tveir á sunnudag en þetta voru allt karlar á aldrinum 20-38 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.