Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Átta teknir fyrir ölvunarakstur

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og Garðabæ og einn í Kópavogi. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 19-36 ára og ein kona, 18 ára. Einn til viðbótar var tekinn í nótt en um var að ræða karl á fimmtugsaldri en sá var stöðvaður í Kópavogi.