Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. febrúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Átta teknir fyrir ölvunarakstur

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Fjórir voru teknir á laugardag, þrír á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 19-43 ára og ein kona, 29 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.