Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. janúar 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Átta líkamsárásir

Átta líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina en fjórar þeirra áttu sér stað í heimahúsum aðfaranætur laugardags og sunnudags. Flestar voru þær minniháttar og ekki er vitað til þess að fólk hafi orðið fyrir alvarlegum meiðslum. Reyndar nefbrotnaði maður eftir átök á skemmtistað en það eru engin stórtíðindi.