Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. maí 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Átta kærðir fyrir hraðakstur

Átta ökumenn hafa á undanförnum dögum verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem hraðast ók mældist á 139 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90. km. á klukkustund. Annar ökumaður, sem kærður var fyrir hraðakstur var án ökuréttinda og að auki eftirlýstur vegna vararefsingar.

Þá fjarlægði lögregla skráningarnúmer af þremur bifreiðum sem voru ýmist óskoðaðar eða ótryggðar.