Fara beint í efnið

2. júní 2021

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaga 5. júní 2021 hafin

Sameining sveitarfélaganna Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagastrandar og Skagabyggðar.

Austur-Húnavatnssýsla

Laugardaginn 5. júní nk. verður kosið um sameiningu sveitarfélaganna Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagastrandar og Skagabyggðar.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst hjá sýslumönnum 8. apríl sl. og má greiða atkvæði á skrifstofum þeirra um allt land fram að kjördagar.

Nauðsynlegt er að framvísa skilríkjum áður en atkvæðagreiðsla fer fram.